−19%Heimilistækin, rafvirkjarnir og verkstæðið á einum stað.
Árvirkinn hefur boðið alhliða þjónustu á sviði raflagna og raftækja frá 1978. Á Eyravegi 32 á Selfossi finnur þú verslun með hágæða heimilistæki, rafverktaka, rafeindavirkja og viðgerðaverkstæði.
Smelltu á tæki í teikningunni til að skoða úrvalið – eða taktu klóna úr sambandi.
Á tilboði núna
Sjá fleiriTilboðsbæklingar
Við gefum reglulega út bæklinga með tilboðum á heimilistækjum frá Siemens, Bosch, AEG og fleiri framleiðendum. Flettu í gegnum nýjasta bæklinginn eða líttu við í versluninni.
Eldri bæklingar og fréttir
Engin verk eru of lítil eða of stór fyrir okkur
Ásamt versluninni starfa hjá Árvirkjanum rafverktakar, rafeindavirkjar og sérfræðingar í öryggiskerfum. Starfsmenn okkar hafa víðtæka og fjölbreytta þekkingu, reynslu og menntun – og verkefnin eru af ýmsum toga víða um land.
- RafvirkjaþjónustaAlhliða þjónusta á sviði raflagna. Engin verk eru of lítil eða of stór fyrir okkur.
- RafeindaþjónustaLoftnetskerfi, símkerfi, tölvulagnir og uppsetning öryggiskerfa.
- ÖryggiskerfiÖryggis-, brunavarna-, myndavéla- og aðgangsstýrikerfi fyrir heimili, sumarhús, fyrirtæki og stofnanir.
- GróðurhúsaþjónustaRaflagnir og stjórnbúnaður í gróðurhúsum. Umboðsaðili Senmatic á Íslandi.
- VerkstæðiðViðgerðir á stærri heimilistækjum frá AEG, Siemens, Bosch og Samsung.
Verkefnin okkar
Skólar, sjúkrahús, hótel, sundlaugar og verslanir – frá Reykjavík austur á Hvolsvöll.
Frá desember 1978
Árvirkinn ehf. var stofnaður af þremur rafvirkjum á Selfossi. Starfsemin byggðist frá upphafi á alhliða þjónustu á sviði raflagna og raftækjaviðgerða og nokkrum árum síðar var opnuð verslun með hágæða raftæki og efni til raflagna. Í dag starfa um 45 manns hjá fyrirtækinu.
Saga ÁrvirkjansKíktu í heimsókn
Eyravegur 32
800 Selfoss
- Mánudaga – föstudaga
- 09:00 – 18:00
- Laugardaga
- 10:00 – 14:00
- Sunnudaga
- Lokað
























