Sími 480 1160Neyðarsími 660 1160 Eyravegur 32, 800 Selfoss

Þjónusta

Árvirkinn býður alhliða þjónustu á sviði raflagna. Engin verk eru of lítil eða of stór fyrir okkur. Ásamt versluninni starfa rafverktakar, rafeindavirkjar og sérfræðingar í öryggiskerfum að Eyravegi 32 á Selfossi.

Rafvirkjaþjónusta

Alhliða þjónusta á sviði raflagna. Engin verk eru of lítil eða of stór fyrir okkur.

Vantar þig rafvirkja? Hringdu í síma 480 1160 eða sendu okkur línu og fáðu upplýsingar um verð, tilboð í verk eða svör við fyrirspurnum um hvaðeina sem tengist raflögnum.

Neyðar- og vaktsími 660 1160

Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi – eitt verkefna Árvirkjans

Rafeindaþjónusta

Loftnetskerfi, símkerfi, tölvulagnir og uppsetning öryggiskerfa.

Rafeindavirkjar okkar eru sérfræðingar í uppsetningu á öryggiskerfum fyrir fyrirtæki og heimili. Meðal annarra verkefna eru uppsetningar á loftnets- og símkerfum, tölvulagnir o.fl. Þeir veita upplýsingar um loftnetskerfi, öryggiskerfi og margt fleira.

Fyrirspurnir sendist á rafeind@arvirkinn.is eða hafið samband í síma 480 1160.

  • Loftnetskerfi
  • Símkerfi
  • Tölvulagnir
  • Öryggiskerfi
  • Myndavélakerfi
  • Aðgangsstýrikerfi

Öryggiskerfi

Við sérhæfum okkur í öryggiskerfum og þjónustum öryggis-, brunavarna-, myndavéla- og aðgangsstýrikerfi eftir því sem við á. Árvirkinn er samstarfsaðili Öryggismiðstöðvar Íslands.

StofaEldhúsSvefnh.HerbergiBaðForstofaSvefnh.
  • Teikningin er dæmi. Rafeindavirkjar okkar meta hvaða búnaður hentar hverju húsnæði.

Samstarfsaðili Öryggismiðstöðvar Íslands. Allar nánari upplýsingar í síma 480 1160 eða á rafeind@arvirkinn.is.

Gróðurhúsaþjónusta

Frá því að Árvirkinn var stofnaður hefur fyrirtækið ávallt leitast við að veita garðyrkjubændum úrvals þjónustu. Í gegnum árin hafa starfsmenn öðlast víðtæka reynslu á sérhæfðu sviði raflagna og stjórnbúnaðar í gróðurhúsum.

  1. 1978Árvirkinn stofnaður – þjónusta við garðyrkjubændur frá upphafi.
  2. 2009Náið samstarf hefst við Frjó Quatro, umboðs- og þjónustuaðila á sviði garðyrkju, ylræktar og matvælaframleiðslu. Árvirkinn sinnir allri tækniþjónustu tengdri umboði á Senmatic – DGT Volmatic.
  3. 2010Árvirkinn tekur alfarið við umboði Senmatic og sinnir allri sölu, innflutningi og þjónustu á vörum þeirra á Íslandi.

Senmatic – DGT Volmatic er mest notaði stjórnbúnaður í gróðurhúsum á Íslandi í dag. Árvirkinn og Frjó Quatro styðja enn hvort annað í því að veita garðyrkjubændum sem besta þjónustu.

21.4°

Verkstæðið

Við rekum öfluga viðgerðaþjónustu á stærri heimilistækjum, s.s. þvottavélum, uppþvottavélum og eldavélum frá AEG, Siemens, Bosch og Samsung.

Bóka viðgerð
Skoðunargjald – heimilistæki
9.990 kr.
Tímagjald – heimilistæki
14.990 kr.

Fá tilboð í verk

Lýstu verkinu og við höfum samband með verð, tilboð eða svör við fyrirspurnum.

Þjónusta
Tegund húsnæðis

Beiðnin fer á arvirkinn@arvirkinn.is. Sýnishorn – ekkert er sent.