Sími 480 1160Neyðarsími 660 1160 Eyravegur 32, 800 Selfoss

Góð þjónusta og vandað vöruúrval

Það er markmið Árvirkjans að bjóða alhliða þjónustu á sviði raflagna – engin verk eru of lítil eða of stór. Starfsmenn okkar hafa víðtæka og fjölbreytta þekkingu, reynslu og menntun á því sviði.

Starfsemi Árvirkjans

Eyravegur 32

Verslun, skrifstofa og verkstæði Árvirkjans eru til húsa að Eyravegi 32 á Selfossi. Við sérhæfum okkur í öryggiskerfum og þjónustum öryggis-, brunavarna-, myndavéla- og aðgangsstýrikerfi fyrir heimili, sumarhús og ýmis fyrirtæki og stofnanir.

Til viðbótar veitum við sérfræðiþjónustu fyrir gróðurhúsaeigendur og erum samstarfsaðili Senmatic.

Samstarfsaðilar

  • Öryggismiðstöð ÍslandsÖryggiskerfi
  • Senmatic – DGT VolmaticStjórnbúnaður gróðurhúsa
  • Frjó QuatroGarðyrkja og ylrækt
  1. 1978

    Árvirkinn stofnaður

    Þrjír rafvirkjar á Selfossi stofna Árvirkjann í desember. Starfsemin byggist frá upphafi á alhliða þjónustu á sviði raflagna og raftækjaviðgerða.

  2. Nokkrum árum síðar

    Verslunin opnar

    Opnuð er verslun með hágæða raftæki og ýmiss konar efni til raflagna.

  3. 2009

    Samstarf við Frjó Quatro

    Árvirkinn sinnir allri tækniþjónustu tengdri umboði Frjó Quatro á Senmatic – DGT Volmatic, mest notaða stjórnbúnaði í gróðurhúsum á Íslandi.

  4. 2010

    Umboð Senmatic

    Árvirkinn tekur alfarið við umboði Senmatic og sinnir allri sölu, innflutningi og þjónustu á vörum þeirra á Íslandi.

  5. 2025

    Neff bætist við

    Þýsku gæðatækin frá Neff, þar sem hönnunin hefur verið sett á oddinn, bætast í vöruúrvalið.

  6. Í dag

    45 starfsmenn

    Umsvifin hafa aukist mjög á undanförnum árum og verkefnin eru af ýmsum toga víða um land. Eigendur eru Guðjón Guðmundsson og Haukur Guðmundsson.

Fréttir og tilboðsbæklingar

Marstilboðin okkar

Siemens og Bosch á flottum tilboðum. AEG, Electrolux, Adler og Samsung heimilistæki á tilboði til 14. mars.

Skoða bækling (PDF)

Jólatilboð Siemens og Bosch

Hágæða heimilistæki frá Siemens og Bosch á árlegu jólatilboði í desember.

Skoða bækling (PDF)

Tilboð í september

Erum einnig að fá nýtt merki sem heitir Neff. Þýsk gæðatæki þar sem hönnunin hefur verið sett á oddinn.

Skoða bækling (PDF)

Viltu vinna hjá Árvirkjanum? Þú getur sent inn almenna umsókn í gegnum fyrirspurnarformið.

Senda umsókn